Stéttarfélög
Réttindi þín
Á vinnumarkaði
Spurningar og svör
Tenglar
Hafðu samband
Minnislisti

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Velkomin á rettindi.is, vef um réttindi ungs fólks á vinnumarkaði.

Það gerist ósjaldan þegar ungt fólk fær í hendurnar sinn fyrsta launaseðil að það skilur hvorki upp né niður í honum. Á launaseðlinum koma fram margvíslegar upplýsingar sem erfitt getur verið að átta sig á.

Einstaka sinnum kemur það líka fyrir að fólk sem ræður sig til vinnu fær ekki það sem því ber samkvæmt lögum og kjarasamningum. Reynslan sýnir að meginástæðan fyrir slíkum brotum er oftast nær vanþekking atvinnurekenda og launamanna á réttindum launafólks.

Með þessum vef vilja starfsmenn í verkalýðshreyfingunni leggja sitt af mörkum til þess að ráða bót á þessum atriðum. Hafðu endilega samband ef þú telur að verið sé að plata þig!